Perlan

Vafrakökur - Skilmálar

1. Hvað eru Vafrakökur (en. cookies)?

Við notum vafrakökur á vefsvæði Perlunnar til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni heimasíðunnar, til greiningar og til að beina auglýsingum til markhópa. Vafrakökur geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.

Hvað er vafrakaka? Vafrakaka er lítil skrá, gjarnan samsett af bókstöfum og tölustöfum, sem hleðst inn á tölvur þegar notendur fara inn á viss vefsvæði. Vafrakökur gera vefsvæðum kleift að þekkja tölvur notenda. Nánari upplýsingar um vafrakökur er að finna á www.allaboutcookies.org.Hverjar eru mismunandi gerðir vafrakaka? Setukökur gera vefsvæðum kleift að tengjast aðgerðum notanda meðan á vafrasetu stendur.

Þær eru notaðar í margvíslegum tilgangi eins og til dæmis að muna hvað notandi hefur sett í innkaupakörfu meðan hann er inni á vefsvæði. Setukökur má einnig nota í öryggisskyni. Setukökur eyðast þegar notandi fer af vefsvæði og eru því ekki vistaðar til lengri tíma. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notanda og muna val eða aðgerðir notanda á vefsvæði.

Fyrsta og þriðja aðila vafrakökur. Það ræðst af léni vefsvæðis sem gerir vafrakökuna hvort hún teljist fyrsta eða þriðja aðila vafrakaka. Fyrsta aðila vafrakökur eru í grundvallaratriðum vafrakökur sem verða til á því vefsvæði sem notandi heimsækir. Þriðja aðila vafrakökur eru þær sem verða til á öðru léni en notandi heimsækir. Þeir sem óttast vafrakökur og vilja aftengja þær geta gert það í vafrastillingum. Tekið skal fram að vefsvæðið okkar ábyrgist ekki nákvæmni eða öryggi efnisinnihalds á þriðja aðila vefsvæðum.

2. Notkun Perlunnar á kökum

Með því að samþykkja skilmála Perlunnar um notkun á cookies er Perlunni m.a. veitt heimild til þess að:

  • bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
  • að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,
  • að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,
  • að birta notendum auglýsingar
  • að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið,

Perlan notar einnig Google Analytics frá Google og Facebook Pixels frá Facebook. Analytics og Pixels safnar upplýsingum nafnlaust og gefur skýrslur um þróun á vefsvæðum án þess að greint sé frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Google Analytics og Facebook Pixels notar sínar eigin kökur til að fylgjast með samskiptum gesta við vefsvæði. Á grundvelli þess áskilur Perlan sér rétt til að birta notendum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google og Facebook. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð og notkun á cookies. Þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar geta slökkt á notkun á kökum.

3. Slökkva á notkun á kökum

Notendur geta og er ávallt heimilt að stilla vefvafrann sína þannig að notkun á kökum er hætt, þannig að þær vistast ekki eða vefvafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Slíkar breytingar geta dregið úr aðgengi að tilteknum síðum á vefsvæðinu eða vefsvæðinu í heild sinni.

Af því að til eru margir mismunandi vefvafrar, höfum við ekki gefið leiðbeiningar fyrir þá alla hér, en þú getur heimsótt vefsvæðið www.allaboutcookies.org til að fá frekari upplýsingar.

Ef þú notar Windows Explorer eru skrefin þessi:

  1. Smelltu á „Windows Explorer“
  2. Veldu hnappinn „Leit“ (Search) á tækjastikunni
  3. Færðu inn „vafrakaka“ (cookie) í leitarreitinn fyrir „Möppur og skrár“
  4. Veldu „Mín tölva“ (My Computer) í fellivalmyndinni „Leita í“ (Look In)
  5. Smelltu á „Leita núna“ (Search Now)
  6. Veldu og opnaðu möppurnar sem eru sóttar
  7. Smelltu til að auðkenna hvaða kökuskrá sem er
  8. Smelltu á takkann „Eyða“ (Delete) til að þurrka út kökuskrána

4. Hversu lengi eru cookies á tölvum/snjalltækjum notenda?

Cookies eru geymdar í tölvum notenda að hámarki í 24 mánuði frá því að notandi heimsóttir síðast vefsíðu Perlunnar.

5. Meðferð Perlunnar á persónuupplýsingum

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuververnd og meðferð persónuupplýsinga. Perlan lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en að ofan greinar og þá verða upplýsingarnar ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu. Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.