Kaupa miða

Umhverfis- og sjálfbærnistefna

Hjá Perlunni leggjum við áherslu á að skapa aðgengilegt og upplýsandi umhverfi þar sem gestir njóta sín um leið og þeir fræðast um fegurð og mikilvægi íslenskrar náttúru. Við rekum starfsemina á ábyrgan og umhverfisvænan hátt og leitum stöðugt leiða til að draga úr kolefnisspori safnsins, bæta orkunýtingu og minnka sóun.

Perlan - Undur íslenskrar náttúru vill vera brú milli vísinda og samfélags. Við leggjum okkar af mörkum með fræðslu til gesta og starfsfólks sem styður við aukna náttúruvitund og ábyrga umgengni. Okkar sýn er að fólk verndi fremur það sem það þekkir og skilur og verði þannig málsvari sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda og heilbrigðari framtíðar.

Við viljum vera fyrirmynd sem veitir innblástur og sýnir í verki hvernig fræðsla, upplifun og ábyrgur rekstur geta farið saman. Grunngildi Perlunnar eru fræðsla, afþreying, vitund, umhyggja og virðing. Við samþættum sjálfbæra starfshætti í rekstri og ákvarðanatöku og horfum bæði til umhverfislegra, félagslegra og menningarlegra áhrifa.

Safn Perlunnar gegnir sérstöku hlutverki sem vettvangur þar sem almenningur fær að kynnast fortíð, nútíð og framtíð náttúruundra Íslands í ljósi vísinda. Við miðlum þekkingu vísindafólks og sköpum rými fyrir upplýsta og gagnrýna umræðu um umhverfismál. Gestir eru hvattir til að sækja sér innblástur og efla eigin þátttöku, því framtíð komandi kynslóða mótast af ákvörðunum samtímans.

Sjálfbærni er leiðarljós Perlunnar og í forgrunni stefnumótunar. Í þeirri vinnu styðjumst við meðal annars við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem ramma fyrir forgangsröðun, aðgerðir og stöðugar umbætur.

Perlan og Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna

Náttúra (Heimsmarkmið 4, 12, 13, 14, 15)

Allar sýningar Perlunnar - Undur íslenskrar náttúru, eru helgaðar því að sýna gestum fegurð og mikilvægi náttúruauðlinda. Perlan er lifandi fræðsluvettvangur þar sem gestir kynnast íslenskri náttúru í ljósi vísinda og gagnvirkrar upplifunar. Gestir fræðast um jökla  og jarðsögu Íslands, kynnast vistkerfinu og dýralífi og upplifa jafnframt krafta íslenskrar náttúru.

Á sama tíma fjöllum við með skýrum hætti um neikvæð áhrif loftslagsbreytinga á jörðina og hvers vegna nauðsynlegt er að við bregðumst öll við. Á safninu má finna fræðslu um bráðnun jökla og í  Íshelli Perlunnar varðveitum við hluta af Ok jökli, sem áþreifanlega áminningu um að jöklar eru að hverfa. 

Það sem við gerum:

  • Fræðum gesti um íslenska náttúru og umhverfisvernd.
  • Hvetjum fólk til að sýna umhverfinu umhyggju og grípa til aðgerða.
  • Endurnýtum og gefum hlutum nýtt hlutverk eins og kostur er.
  • Flokkum úrgang og tryggjum endurvinnslu eftir því sem við á.
  • Drögum úr pappírsnotkun og prentuðu kynningarefni.
  • Prentum ekki lengur kynningarbæklinga fyrir safnið.
  • Skiptum  út einnota umbúðum fyrir umhverfisvænni valkosti þar sem við á.
  • Notum QR-kóða og vef Perlunnar til að miðla mikilvægum upplýsingum til gesta.

Samfélag (Heimsmarkmið 4, 9, 11, 13)

Perlan - Undur íslenskrar náttúru, leggur áherslu á að hafa jákvæð áhrif á bæði nærsamfélag og alþjóðlegt samfélag. Við kappkostum að byggja upp samstarf við fjölbreytta aðila til að efla sjálfbærni og velferð bæði náttúru og manna. Við tökum á móti hópum grunn- og framhaldsskólanema allt árið og eigum gott og öflugt samstarf við Háskóla Íslands. Jafnframt styðjum við viðburði í nærumhverfinu og tökum þátt í hreinsunarátökum og uppgræðslu verkefnum.

Það er okkur mikilvægt að sem flestir hafi tækifæri til að fræðast um náttúruundur og skilja mikilvægi þess að vernda þau. Því hefur Perlan átt í samstarfi við fjölda stofnana og félagasamtaka, þar á meðal Seeds, Útlendingastofnun, Kraft og Help Ukraine.

Það sem við gerum:

  • Stöndum fyrir og höfum tekið þátt í sérviðburðum tengdum umhverfismálum (t.d. #stóriplokkdagurinn).
  • Bjóðum upp á fræðsluviðburði fyrir starfsfólk og nærsamfélagið.
  • Styðjum félagasamtök, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar og skóla í nærumhverfi með gjafabréfum og styrkjum.

Starfsfólk og mannauður (Heimsmarkmið 3, 4, 5, 8, 10)

Perlan byggir á öflugum og fjölþjóðlegum hópi starfsfólks. Við virðum ávallt réttindi starfsfólks og leggjum áherslu á að skapa heilbrigt, öruggt og ánægjulegt vinnuumhverfi.

Við veitum meðal annars:

  • Fræðslu um öryggismál og viðbrögð við neyðartilvikum (fyrsta hjálp).
  • Þekkingu og fræðslu um umhverfisvernd og sjálfbæra ferðaþjónustu.
  • Styrki til náms í íslensku.
  • Styrki til námskeiða sem styðja faglega þróun og nýtast í starfi.
  • Aðgang að viðtölum hjá Kvíðameðferðarstöðinni (KMS) ef þörf krefur.
  • Heilsusamlegum valkostum í starfsmannaeldhúsi.
  • Skýrar verklagsreglur í vinnuvernd sem taka á einelti, áreitni og ofbeldi.
  • Áherslu á sálfélagslegt öryggi með reglubundnum samtölum og markvissum samskiptum.
  • Tækifæri til áframhaldandi starfsþróunar, þar sem starfsfólk byggir upp reynslu, hæfni og þekkingu til að geta þróast í sarfi, þegar við á.

Frjálst flæði hugmynda er grundvallaratriði í starfsemi Perlunnar. Við höfum unnið með listafólki og samstarfsaðilum víðs vegar að úr heiminum og veitt vettvang fyrir þverfaglegt samtal, gagnkvæman skilning og virðingu.

Jafnrétti kynja (Heimsmarkmið 5, 10)

Öll eiga að hafa jöfn tækifæri til að þróa hæfileika sína og njóta jafnrar þátttöku, óháð kynvitund.

Það sem við gerum:

  • Vinnum að jöfnum tækifærum allra kynja.
  • Tryggjum jöfn laun fyrir sambærilegt starf, óháð kyni eða kynvitund.
  • Hvetjum öll kyn til að sækja um störf hjá Perlunni.
  • Stuðlum að því að starfsfólk geti samræmt fjölskyldulíf og starfsferil, óháð kyni.

Matarsóun (Heimsmarkmið 12)

Matarsóun er vaxandi áskorun í nútímasamfélagi. Talið er að um þriðjungur allrar matvælaframleiðslu á heimsvísu fari til spillis. Slík sóun hefur veruleg áhrif á umhverfi, efnahag og fæðuöryggi.

Það sem við gerum:

  • Hvetjum gesti til að taka afganga með sér heim í umhverfisvænum umbúðum.
  • Vinnum að því að innleiða kerfisbundna mælingu á allri matarsóun sem hluta af rekstri til lengri tíma. 
  • Endurvinnum notaða steikingarolíu og fitu.
  • Óseldar vörur eru settar í starfsmannaeldhús til nýtingar fyrir starfsfólk.

Raforka (Heimsmarkmið 7)

Ísland framleiðir nær alla raforku sína með endurnýjanlegum orkugjöfum, fyrst og fremst jarðvarma og vatnsafli. Þetta styður við Heimsmarkmið 7 um aðgengi að hagkvæmri, áreiðanlegri, sjálfbærri og nútímalegri orku og styrkir jafnframt viðleitni til að sporna við loftslagsbreytingum samkvæmt Heimsmarkmiði 13.

Það sem við gerum:

  • Bjóðum upp á hleðslustöðvar fyrir rafbíla gesta í samstarfi við ON Power og Reykjavíkurborg.
  • Styðjum vistvænni samgöngukosti í nærumhverfi t.d. með aðgengi að HOPP rafskútum og raf deilibílum. 
  • Skipt er markvisst yfir í LED-lýsingu; það er langtímaverkefni sem er þegar hafið.

Vatn (Heimsmarkmið 6)

Neysluvatn á Íslandi er almennt talið mjög hreint og öruggt til drykkjar og er aðgengilegt öllum íbúum og gestum án endurgjalds. Vatnsból landsins eru að stórum hluta jökulvatn og vatn úr lindum neðanjarðar og vatnið fer yfirleitt í gegnum einfalda meðhöndlun áður en því er dreift. Það er því öruggt til drykkjar beint úr krananum.

Það sem við gerum:

  • Veljum umhverfisvottaðar vörur og leggjum áherslu á að losa sem minnst af efnum út í fráveitukerfið.
  • Hvetjum starfsfólk og gesti til að fylla á fjölnota vatnsflöskur með kranavatni í stað þess að kaupa vatn í plastflöskum.

VAKINN

Vakinn er opinber gæða- og umhverfisvottun fyrir ferðaþjónustu á Íslandi og hefur verið í boði síðan 2012. Umsjón með Vakanum er hjá Ferðamálastofu og úttektir eru framkvæmdar af óháðum skoðunar- og vottunarstofum. 

Vottunin er ætluð ferðaþjónustufyrirtækjum sem uppfylla skýrar kröfur um gæði, öryggi og sjálfbærni í starfsemi sinni. Markmið Vakans er að bæta gæði, auka öryggi og stuðla að sjálfbærni innan íslenskrar ferðaþjónustu. 

Merki Vakans sýnir að það megi ganga að því vísu að fyrirtækið starfi eftir viðurkenndum viðmiðum og hafi farið í formlegt mats- og úttektarferli. 

Fyrir ferðamenn þýðir Vakinn vottun að:

  • fyrirtækið starfar á faglegan, siðferðilegan og umhverfislega ábyrgan hátt, 
  • lögð er áhersla á gæði og öryggi, með viðmiðum og verklagi sem styður örugga og ánægjulega ferð, 
  • þú getur valið þjónustu með meira trausti og átt auðveldara með að taka upplýsta ákvörðun. 

Nánari upplýsingar um Vakann má finna á vef Vakans.

Perlan og Vakinn

Hjá Perlunni leggjum við ríka áherslu á vernd náttúrunnar og ábyrga ferðaþjónustu. Þess vegna erum við stolt af því að bera vottun Vakans, opinbera gæða- og umhverfisvottun sem staðfestir skuldbindingu okkar til sjálfbærni, umhverfis- og samfélagslegrar ábyrgðar.

Með því að viðhalda þessari vottun síðustu ár viljum við sýna í verki að við setjum há viðmið og hvetjum til ábyrgra ferðavenja. Ábyrg ferðalög felast í því að taka meðvitaðar ákvarðanir sem draga úr umhverfisáhrifum, bera virðingu fyrir nærsamfélagi og stuðla að vernd menningararfs en skapa á sama tíma jákvæða upplifun fyrir alla.