Spurt og svarað
Almennar spurningar
Perlan opnaði aftur 1. júlí 2017 eftir gagngerar breytingar og er opin alla daga ársins.
- Sýningin Jöklar og íshellir er opin frá 09:00-19:00*
- Útsýnispallurinn og gjafavöruverslun er opin frá 09:00-19:00*
- Kaffitár er opið frá 09:00-21:00
- Veitingastaðurinn Út í bláinn er opinn 11:30-22:00.
*Síðustu miðar eru seldir 18:00.
- Sýningin Jöklar og íshellir er opin frá 09:00-19:00*
- Útsýnispallurinn og gjafavöruverslun er opin frá 09:00-19:00*
- Kaffitár er opið frá 09:00-21:00
- Veitingastaðurinn Út í bláinn er opinn 11:30-22:00.
*Síðustu miðar eru seldir 18:00.
Já, Perlan er opin alla daga ársins.
Í Perlunni mega vera allt að 2.180 manns í einu.
Já, Perlan og allar sýningarnar eru aðgengilegar fyrir hjólastóla.
Sérstakt verð eru fyrir börn og einnig verður í boði sér fjölskylduverð. Sjá nánar á síðunni um Jökla og íshellinn.
Boðið er uppá sérstakt verð fyrir hópa, ferðaheildsala. Hafið samband við hópadeild í netfanginu agent@perlanmuseum.is fyrir nánari upplýsingar.
Á fimmtu hæð er nú nýtt og spennandi veitingahús, Út í bláinn, ásamt hinu sívinsæla kaffihúsi Kaffitár.
Jöklasýning og íshellir
Jöklasýningin og íshellirinn opna í sumar, 2017.
Það komast 50 manns í einu inn í íshellinn, og það geta farið um 300 manns í gegnum íshellinn á einni klukkustund.
Við höldum jöfnu -10C frosti í íshellinum. Það er líka svolítil vindkæling vegna loftræstingarinnar.
Ferðin í gegnum íshellinn tekur 7-12 mínútur.
Nei, það þarf ekki brodda undir skóna í íshellinum. Gólfið er hannað að vera sem minnst hált. Við biðjum gesti um að fara ávallt með gát, en íshellirinn er ætlaður öllum aldurshópum.
Hitastigið í íshellinum er um -10C, svo það þarf hlý föt, en við útvegum þeim sem vilja hlýja yfirhöfn.
Við getum lánað þér hlýtt vesti fyrir íshellinn. Þú þarft ekki sérstaka skó.
Stjörnuver
Það eru 150 sæti í stjörnuverinu.
Varmahlíð 1, 105 Reykjavík
Þarftu aðstoð?
Einhverjar spurningar?

Veitingastaður, kaffihús og gjafaverslun