• Íslenska
  • English
Forsíða


TopWorld


Veitingahúsið Perlan
Sími: 562 0200
Fax: 562 0207
Netfang: perlan@perlan.is

Afgreiðslutími alla daga:
Húsið: Frá kl. 10.
Kaffitería: Milli 10-21.
Veitingastaður: Frá kl. 18:30.

Við getum aðstoðað þig

veitingastadur.jpgHvert svo sem tilefnið er, má finna í Perlunni rétta umhverfið fyrir hátíðarhöldin. Brúðkaupsveislur, erfidrykkjur, óvenjulegar afmælisveislur t.d.  morgunverðarhlaðborð með brennivíni og síld, kokteilboð, kampavínsveislur, já eða dansiball.

Láttu ímyndunaraflið ráða og starfsfólk Perlunnar kemur hugmyndum þínum í framkvæmd. Starfsfólkið hefur einnig verulega gaman af því að láta gamminn geysa og leggja til frumlegar og óvenjulegar hugmyndir til þess að veislan þín verði sem allra best. Hringdu og leitaðu nánari upplýsinga.

 
Gjafabréf Perlunnar
gjafabref_scanGjafabréf Perlunnar er góð gjöf við hvaða tækifæri sem er. Hafðu samband við skrifstofu Perlunnar í síma 562-0200 eða með tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og pantaðu gjafabréf sem við sníðum að þínum þörfum.
 
Erfidrykkjur

Veitingastaðurinn á fimmtu hæð Perlunnar er fallegur og notalegur staður fyrir erfidrykkjur. Boðið er upp á hlaðborð með glæsilegum tertum og kökum ásamt hefðbundnu meðlæti eins og kleinum og flatkökum með hangikjöti.

Verðið kemur þægilega á óvart, aðeins 1.750 kr. á mann.